Okkur hjá UMF. Samherjum vantar áhugasama unglinga til að aðstoða við þjálfun yngri iðkenda félagsins.
Við leitum að unglingaþjálfurum fyrir:
- Frjálsar – 1.–4. bekk: Þriðjudaga kl. 14:00–15:00
- Fótbolta – 7. flokk: Fimmtudaga kl. 14:00–15:00 og föstudaga kl. 15:00–16:00
- Körfubolta – 1.–2. bekk: Mánudaga kl. 15:00–16:00 og miðvikudaga kl. 14:00–15:00
Starfið felst meðal annars í að aðstoða þjálfara með börnin ásamt því að hjálpa til við að setja upp fyrir æfingar og ganga frá að þeim loknum.
Þetta er skemmtilegt tækifæri fyrir áhugasama unglinga sem hafa gaman af íþróttum og vilja öðlast reynslu af þjálfun og starfi með börnum.
Áhugasamir geta sent póst á skirnir@samherjar.is, sagt aðeins frá sér og tekið fram hvaða hópi þeir hafa mestan áhuga á að aðstoða.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september.
Til baka í fréttir