Stjórn Samherja hefur samið við JAKO um búninga félagsins. Litið var sérstaklega til þjónustu, aðgengis og fjölbreytni í vöruframboði til að mæta þörfum fjölgreinafélags eins og okkar.
JAKO býður upp á vefverslun þar sem panta má búninga og fylgihluti eftir þörfum. Þar má velja íþróttafélög og finna síðu UMF Samherja, panta félagsföt merkt félaginu og fá sent heim. Vöruúrvalið bætist við með tímanum.
Vefverslun JAKO – UMF Samherjar →
Númer á keppnistreyjur
Númerakerfið á eingöngu við keppnistreyjur (fótbolta- og körfuboltatreyjur), ekki annan fatnað. Það er einfalt og kemur í veg fyrir að keppendur séu með sama númer á vellinum:
- Iðkendur fæddir á ári með sléttri tölu velja sér slétta tölu frá 2–98.
- Iðkendur fæddir á ári með oddatölu velja sér oddatölu frá 1–99.
Dæmi: Jón er fæddur 2012 og velur úr sléttum tölum (2–98); Gunna er fædd 2013 og velur úr oddatölum (1–99).
Ekki er gerð krafa um mismunandi númer fyrr en í 7. bekk í fótbolta; í körfubolta fer það eftir mótum en getur þurft í 4.–5. bekk. Öllum er þó frjálst að velja númer strax, frá 1. bekk upp í 10. bekk. Samherjar halda skrá um valin númer, svo hafið samband til að kanna hvaða númer eru laus — velja má sama númer í báðum greinum sé það laust.
Ekki þarf að kaupa nýja búninga strax; eldri búningar eru gjaldgengir þar til þeir verða of litlir.
Velja númer
Til að velja númer hafðu samband við Svönu í síma 864 3085 eða sendu póst á samherjar@samherjar.is.