Leitum að þjálfurum fyrir Kríladans og Leikjaskóla
UMF. Samherjar leitar að tveimur jákvæðum og ábyrgum einstaklingum til að taka við Kríladansi og Leikjaskóla frá og með október.
Kríladans – 4–5 ára
Laugardagar kl. 10:15–11:00
Leikjaskóli – 2–5 ára
Sunnudagar kl. 10:15–11:00
Við leitum að einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með börnum og treysta sér til að skipuleggja og stýra skemmtilegum tímum. Reynsla af starfi með börnum, dansi eða íþróttum er kostur.
Um tvö aðskilin störf er að ræða.
Áhugasöm eru hvött til að senda á skirnir@samherjar.is fyrir 27. september.
Til baka í fréttir