Fréttir / Samherjar

Íþróttavika Evrópu

Íþróttavika Evrópu

Íþróttavika Evrópu fer fram dagana 23.–30. september og af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá í Eyjafjarðarsveit.

Markmið vikunnar er að hvetja fólk á öllum aldri til að hreyfa sig, prófa eitthvað nýtt og njóta þess að vera saman. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, reynslu eða líkamlegu ástandi.

UMF. Samherjar tekur að sjálfsögðu þátt og opnar dyrnar að fjölmörgum æfingum félagsins. Gestum gefst meðal annars kostur á að prófa badminton, hnefaleika, körfubolta, blak, fótbolta, styrktaræfingar, vatnsleikfimi, kríladans og leikjaskóla. Einnig verður boðið upp á opna tíma hjá fleiri aðilum í sveitarfélaginu.

Það kostar ekkert að mæta í opnu tímana og ekki þarf að vera skráður iðkandi hjá félaginu. Þetta er því kjörið tækifæri til að prófa nýja hreyfingu, kynnast starfseminni og finna eitthvað sem hentar.

Fjölskyldufjör á laugardaginn

Laugardaginn 26. september, kl. 16:00 – 18:00, verður fjölskyldufjör í íþróttahúsinu á Hrafnagili í umsjá okkar.

Við hvetjum fjölskyldur til að koma saman, hreyfa sig og eiga skemmtilega stund. Allir eru velkomnir og það þarf ekki að skrá sig.

Auk þess verður frítt í sund alla daga íþróttavikunnar.

Við hvetjum íbúa Eyjafjarðarsveitar og nágrennis til að kynna sér dagskrána, mæta í opna tíma og taka þátt í þessari skemmtilegu hreyfiviku með okkur.

Prófum eitthvað nýtt og verum virk saman!

 

Til baka í fréttir

Nýjustu fréttir

Allar fréttir