Lög Ungmennafélags Samherja

1. gr.

Félagið heitir Ungmennafélagið Samherjar, skammstafað Umf. Samherjar. Heimili félagsins og varnarþing er í Eyjafjarðarsveit. Félagið er aðildarfélag í U.M.S.E.

2. gr.

Félagið er sameinað úr þremur ungmennafélögum, þ.e. Umf. Árroðanum, Umf. Framtíð og Umf. Vorboðanum og yfirtekur þar með allar þeirra skyldur, svo sem eignir og skuldir, og að starfa í þeirra anda. Iðkendur verða sjálfkrafa félagar er þeir hefja æfingar með félaginu. Einnig er hægt að gerast félagi með því að greiða valgreiðslukröfu frá félaginu í heimabanka. Félagar skulu skráðir í félagatal ungmennafélagsins. Skrifleg beiðni skal berast þegar menn óska eftir að ganga úr félaginu.

3. gr.

Markmið félagsins er:

  • að vinna að eflingu íþróttastarfsemi í Eyjafjarðarsveit og glæða áhuga almennings á heilsurækt og alhliða íþróttaiðkun.
  • að stuðla að ýmiss konar félags- og menningarstarfsemi.
  • að vinna gegn neyslu hvers konar vímuefna.

4. gr.

Aðalfund félagsins skal halda ár hvert og eigi síðar en 30. apríl. Aðalfund skal auglýsa með minnst viku fyrirvara. Málefni sem félagar óska eftir að taka fyrir á aðalfundi ber að tilkynna stjórnarmanni minnst 2 dögum fyrir aðalfund. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins og atkvæðisrétt hafa félagar 16 ára og eldri. Á aðalfundi ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála, nema þegar um er að ræða breytingar á lögum félagsins. Aðeins er hægt að gera lagabreytingar á aðalfundi. Skulu lagabreytingar boðast í fundarboði og samþykkjast þær með 2/3 atkvæðabærra fundarmanna. Ef atkvæði eru jöfn í mannakosningu skal kosið bundinni kosningu um þá menn að nýju og ef úrslit ráðast ekki skal hlutkesti ráða. Fundurinn er lögmætur ef löglega hefur verið til hans boðað.

5. gr.

Auka aðalfund má halda ef nauðsyn krefur og skal til hans boðað með 4 daga fyrirvara.

6. gr.

Stjórn félagsins skipa 5 menn, formaður, ritari, gjaldkeri og 2 meðstjórnendur sem kosnir eru á aðalfundi félagsins og skipta þeir með sér verkum. Á aðalfundi skal einnig kjósa 2 varamenn og 2 skoðunarmenn. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, varamenn og skoðunarmenn til eins árs. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála í stjórn en falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.

Bókun: Fundurinn leggur til að á aðalfundi 2024 verði kosið eftir nýjum lögum en þeir þrír stjórnarmenn sem ætla að halda áfram stjórnarsetu halda áfram til eins árs en tveir nýir stjórnarmenn verði kosnir til tveggja ára. 2024 skal kosið um tvo aðalmenn í stjórn til tveggja ára samkvæmt framangreindu en þrír halda sæti sínu. Á aðalfundi 2025 skal kosið um þrjá aðalmenn til tveggja ára en tveir halda sæti sínu.

7. gr.

Reikningsár félagsins miðast við almanaksárið.

Dagskrá aðalfundar

  1. Kosnir fastir starfsmenn.
  2. Skýrsla stjórnar.
  3. Gjaldkeri leggur fram reikninga.
  4. Umræður um skýrslur og reikninga.
  5. Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar og afgreiðsla þeirra.
  6. Kosning stjórnar.
  7. Önnur mál.
  8. Fundargerð lesin.
  9. Fundarslit.

8. gr.

Stjórn félagsins ber að efla félagið og gæta hagsmuna þess í hvívetna, fylgjast með og stjórna öllum framkvæmdum milli funda. Heimilt er stjórn að setja á fót nefndir sem hún telur þörf á. Gjaldkeri skal sjá um fjárreiður félagsins og skila endurskoðuðum ársreikningum á aðalfundi ár hvert. Ritari skal skrifa allar fundargerðir og sjá um að færa gjörðabók félagsins. Formaður er framkvæmdastjóri félagsins og sér um að boða til funda og hafa yfirumsjón með störfum stjórnar. Varamenn í stjórn sitja alla fundi stjórnar og aðstoða stjórn við þau verkefni er fyrir liggja hverju sinni.

9. gr.

Félagar 18 ára og eldri greiða árgjald til félagsins. Skal það ákveðið á aðalfundi ár hvert.

10. gr.

Halda skal gjörðabók um starfsemi félagsins. Félagið skal halda eignaskrá um allar eignir sínar.

11. gr.

Halda skal skrá um alla meðlimi félagsins svo séð verði á hverjum tíma hverjir eru fullgildir félagar.

12. gr.

Ákvörðun um að leggja félagið niður má aðeins taka á aðalfundi félagsins. Við rof á félaginu skulu eignir félagsins leggjast til geymslu hjá sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar, þar til annað samsvarandi félag hefur verið stofnað.

Samþykkt á aðalfundi árið 2024.