Félagið

Ungmennafélagið Samherjar er fjölgreina íþróttafélag í Eyjafjarðarsveit. Hjá félaginu finna iðkendur á öllum aldri fjölbreytta hreyfingu, félagsskap og keppni við sitt hæfi.

Félagið var stofnað árið 1996 við sameiningu þriggja ungmennafélaga í sveitinni — Umf. Árroðans, Umf. Framtíðar og Umf. Vorboðans — og starfar áfram í þeirra anda. Samherjar eru aðildarfélag að Ungmennasambandi Eyjafjarðar (U.M.S.E.).

Í dag bjóða Samherjar upp á ellefu deildir — allt frá körfubolta, fótbolta og frjálsum íþróttum til badmintons, blaks, dans og vatnsleikfimi, auk leikjaskóla fyrir yngstu iðkendurna. Sjá allar deildir.

Markmið félagsins

  • Að efla íþróttastarfsemi í Eyjafjarðarsveit og glæða áhuga almennings á heilsurækt og alhliða íþróttaiðkun.
  • Að stuðla að margvíslegri félags- og menningarstarfsemi.
  • Að vinna gegn neyslu hvers konar vímuefna.

Samherjar starfa eftir siðareglum og hegðunarviðmiðum ÍSÍ, og öll skráning á æfingar fer fram í gegnum Abler.

Nánari upplýsingar má finna á síðum stjórnar og laga félagsins, eða hafðu samband við okkur.