Nýtt fyrir unglingastig
UMF. Samherjar hefur ákveðið að gera breytingu á íþróttastarfi fyrir unglingastig. Körfuboltaæfingum hópsins verður breytt í hnefaleikaæfingar og gefst unglingunum okkar því tækifæri til að prófa eitthvað alveg nýtt.
Sævar verður áfram með hópinn og á æfingunum verða kennd helstu grunnatriði hnefaleika, þar á meðal högg, vörn og fótavinna. Æfingarnar verða góð blanda af tækni, hreyfingu og skemmtilegum áskorunum.
Markmiðið er að byggja upp áhuga og færni hjá hópnum í vetur og stefna á að iðkendurnir geti tekið þátt á Diplomamótinu á Akureyri í maí.
Okkur finnst þetta spennandi nýjung vera frábært tækifæri fyrir unglingana okkar til að koma, prófa nýja íþrótt og fá góða hreyfingu í leiðinni. Við hvetjum því alla til að mæta og gefa hnefaleikunum séns, hver veit nema þetta verði bara mjög gaman 😉🥊
Fyrsta hnefaleikaæfingin verður strax á morgun, þriðjudaginn 15. september, kl. 17:00–18:00.
Til baka í fréttir