Skráning í íþróttagreinar hjá UMF Samherjum fer fram í gegnum skráningarkerfið Abler (áður Sportabler). Kerfið heldur utan um skráningu í íþróttagreinar og innheimtu æfingagjalda og er jafnframt samskiptakerfi milli foreldra og þjálfara.
Við hvetjum foreldra og iðkendur til að sækja Abler-appið. Í gegnum það má halda utan um öll samskipti og sjá upplýsingar um æfingar, leiki og mót sem þjálfari setur inn, senda skilaboð á forráðamenn í einstökum flokkum og tilkynna forföll. Þjálfarar halda einnig utan um mætingu í kerfinu.
Skrá í íþróttagreinar á Abler →
Æfingagjöld
Greitt er fyrir fyrstu íþróttagreinina en frítt í þær sem á eftir koma. Æfingagjald er 25.000 kr. Nauðsynlegt er þó að skrá iðkanda í allar þær íþróttagreinar sem hann ætlar að stunda.
Þegar greitt er í gegnum Abler er hægt að vista eða prenta kvittun sem nota má til að sækja um frístundastyrk hjá sveitarfélaginu — sjá nánar á síðunni Æfingagjöld. Kvittun berst einnig í tölvupósti til greiðanda.