Á morgun fögnum við 30 ára afmæli UMF. Samherja og vonumst til að sjá sem flesta á milli 14:00 og 16:00.
Það verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna og stefnum við á að vera úti hjá víkingaskipinu á skólalóðinni við Hrafnagilsskóla! Við grillum pylsur, verðum með 4 hoppukastala, andlitsmálun, tónlist og fullt af skemmtilegri afþreyingu. Einnig verður hægt að fara á hestbak, spila frisbígolf, prófa nýja púttvöllinn við hliðina á Laugarborg, taka þátt í körfuboltaleikjum á vellinum okkar og margt, margt fleira.
Og hafið engar áhyggjur af veðrinu! Ef það ákveður að stríða okkur færum við dagskrána einfaldlega inn í íþróttahúsið og skemmta okkur þar. 😉
Endilega takið með ykkur fjölskyldu og vini og deilið færslunni svo sem flestir sjái hana.
Við hlökkum til að sjá ykkur á morgun 😉
Til baka í fréttir