Fréttir / Samherjar

Óskað eftir sjálfboðaliðum á Landsmót 50+ og afmælishátíð félagsins!!

Dagana 26.–28. júní verður sannkölluð hátíðarhelgi í okkar samfélagi þegar Landsmót 50+ fer fram samhliða afmælishátíð Ungmennafélagsins. Til að helgin verði sem glæsilegust þurfum við á öflugu og jákvæðu fólki að halda.

Við leitum eftir sjálfboðaliðum til að sinna fjölbreyttum verkefnum, meðal annars við að manna keppnisgreinar, aðstoða í sjoppum, þjónustu á afmælishátíð félagsins og ýmsum öðrum verkefnum sem falla til yfir helgina.

Aldur skiptir ekki máli, öll hjálp er vel þegin. Hvort sem þú getur gefið nokkrar klukkustundir eða tekið að þér stærra hlutverk skiptir framlag þitt miklu máli. Án sjálfboðaliða væri einfaldlega ekki hægt að halda viðburði af þessari stærð og því vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að leggja okkur lið.

Starfsemi félagsins byggir á samheldni og sjálfboðastarfi, og svona viðburðir sýna best þann kraft sem býr í samfélaginu okkar þegar við leggjumst öll á eitt.

Við hvetjum því alla sem hafa tök á að taka þátt að bjóða fram krafta sína.

hér er hlekkur á skjal sem þið getið farið inná og skráð ykkur, við munum síðan hafa samband við það fólk sem skráir sig 😉 : https://docs.google.com/spreadsheets/d/1R_W51UkrM5rjvqNAdpQgA5Rm6I9pJvJ8G91FWSRw9VQ/edit?usp=sharing  

Vonandi sjáum við sem flesta!!

Til baka í fréttir