Fréttir / Samherjar

Hnefaleikanámskeið hjá UMF. Samherjum í sumar

UMF. Samherjar bjóða í sumar upp á 4 vikna grunnnámskeið í hnefaleikum í samstarfi við Hnefaleikadeild Þórs.

Námskeiðið verður haldið dagana 6.–30. júlí og er ætlað öllum 10 ára og eldri. Það hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í hnefaleikum sem og þeim sem vilja bæta tækni, líkamsbeitingu og almennt líkamlegt form.

Kennari námskeiðsins er Sævar Ingi Rúnarsson frá Hnefaleikadeild Þórs. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu undirstöðuatriði hnefaleika, þar á meðal fótavinnu, líkamsstöðu, höggtækni, samhæfingu og þolþjálfun. Mikil áhersla verður lögð á öryggi, virðingu og jákvæða upplifun þátttakenda.

Námskeiðið felur ekki í sér barsmíðar eða keppni heldur er markmiðið að kynna íþróttina á aðgengilegan og skemmtilegan hátt.

Nánari upplýsingar

Tímabil: 6.–30. júlí 2025
Æfingatímar: Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30–18:30
Staðsetning: Íþróttahúsið í Eyjafjarðarsveit
Aldur: 10 ára og eldri
Verð: 16.000 kr.

Við hvetjum bæði börn, unglinga og fullorðna til að nýta þetta tækifæri til að kynnast hnefaleikum undir leiðsögn reyndra þjálfara.

Skráning fer fram í Abler og er nú þegar hafin.

https://www.abler.io/shop/samherjar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTk1MDY=

Til baka í fréttir