Framkvæmdastjóri – Starfssvið og skyldur samkvæmt starfssamningi:
- Framkvæmdastjóri vinnur eftir ákvörðun stjórnar Umf. Samherja hverju sinni og kemur þeim verkefnum sem stjórn samþykkir í framkvæmd. Hann hefur jafnframt yfirumsjón með starfi félagsins.
Starfslýsing er því ekki tæmandi, sem dæmi:
- Sér um öll almenn störf á skrifstofu og utanumhald um Abler kerfið, til að mynda setja inn æfingar allra flokka, útbúa greiðsluviðburði og gera tilkynningar á iðkendur í samráði við þjálfara.
- Hefur yfirumsjón með skipulagi á æfingatöflu, bæði vetur og sumar, í nánu samstarfi við stjórn Umf. Samherja og forstöðumann íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar.
- Aðstoðar stjórn Umf. Samherja við ráðningu á þjálfurum fyrir allar íþróttagreinar.
- Er yfirmaður allra þjálfara yngri flokka.
- Er tengiliður þjálfara við stjórn.
- Aðstoðar þjálfara með mál sem snúa að þjálfun og samskiptum við forráðamenn eftir þörfum.
- Aðstoðar við skipulag mótahalds í samstarfi við viðkomandi þjálfara og foreldraráð.
- Situr stjórnarfundi stjórnar Umf. Samherja og nefnda/ráða sé þess óskað.
- Gefur stjórn Umf. Samherja góða skýrslu um framgang mála á hverjum stjórnarfundi og þarf að gæta þess að vinna mál í nánu samstarfi við stjórn hverju sinni.
- Hefur yfirlit með greiðslum æfingagjalda í samstarfi við stjórn Umf. Samherja.
- Sér um að leita styrkja fyrir félagið.
- Hefur yfirumsjón með fjáröflunum félagsins og vinnur í samstarfi við stjórn og foreldraráð.
- Tekur þátt í stefnumótun fyrir félagið ásamt stjórn.
- Er ábyrgðaraðili gagnvart sérsamböndum ÍSÍ t.d. KKÍ, FRÍ og KSÍ
- Er ásamt formanni Umf. Samherja samskiptaaðili við sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar.
- Önnur verkefni sem stjórn Umf. Samherja ákveður hverju sinni.
Möguleiki er á hærra starfshlutfalli með því að gerast aðalþjálfari í einum eða fleiri flokkum í starfinu.
Hæfniskröfur:
- Lipurð í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Jákvætt og drífandi viðhorf.
- Hæfni í að koma frá sér skýrum og skilmerkilegum upplýsingum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Reynsla af sportabler er kostur
- Menntun eða reynsla á sviði íþrótta er kostur
- Hreint sakavottorð.
Allar nánari upplýsingar gefur Svanhildur Ósk Ketilsdóttir, formaður stjórnar Umf. Samherja, í síma 864-3085 á milli kl. 10-13 á daginn.
Umsóknir sendist á netfangið samherjar@samherjar.is – Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Til baka í fréttir