Fréttir / Samherjar

Stjórnarskipti

Aðalfundur Umf. Samherja var haldinn mánudaginn 10. mars s.l. Þá var kjörin ný stjórn sem nú hefur skipt með sér eftirfarandi verkum:

Sigurgeir Sveinn Gíslason formaður

Harpa Friðriksdóttir gjaldkeri

Kristbjörg Bech ritari

Árdís Eva Skaftadóttir meðstjórnandi

Andrea Þórey Hjaltadóttir meðstjórnandi.

Varamenn í nýrri stjórn eru Erwin van der Werve og Helga Rut Sæmundardóttir.

Fundargerð frá aðalfundi má finna hér: https://docs.google.com/document/d/1XyAaB1o6DmpkiAORB7GsJoW_ZS_dTalQ2CbFo9uI7X0/edit?usp=sharing

Nú er komið að kveðjustund. Fráfarandi stjórn Umf. Samherja gengur stolt frá borði og færir kyndilinn áfram í hendur nýrrar stjórnar. Síðustu 2 ár hafa verið lærdómsrík, krefjandi en umfram allt skemmtileg. Það hefur verið afskaplega gaman og gefandi að taka þátt í uppbyggingu á ungmennafélaginu okkar allra. Það hefur skipt okkur miklu máli að þið hafið verið tilbúin að taka þátt í starfinu með okkur og mæta á æfingar. Kærar þakkir til allra iðkenda, þjálfara, foreldra og velunnara – án ykkar væri ekkert ungmennafélag.

Fráfarandi stjórn óskar nýkjörinni stjórn velfarnaðar í öllum þeirra störfum.

Áfram Samherjar!

Til baka í fréttir