Aðalfundur ungmennafélagsins Samherja verður haldinn í Félagsborg mánudaginn 10. mars 2025 kl. 20.
Dagskrá fundarins er:
- Kosnir fastir starfsmenn
- Skýrsla stjórnar
- Gjaldkeri leggur fram reikninga
- Umræður um skýrslur og reikninga
- Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar og afgreiðsla þeirra
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
- Fundargerð lesin
- Fundarslit
Stjórn hvetur sveitunga til að fjölmenna á aðalfundinn og hafa þannig áhrif á störf félagsins. Málefni sem félagar óska eftir að taka fyrir á aðalfundi ber að tilkynna stjórnarmanni minnst 2 dögum fyrir aðalfund. Að þessu sinni munu 4 stjórnarmenn ganga úr stjórn. Óskum við því eftir framboðum 4 einstaklinga í stjórn og 2 varamönnum. Það er mjög gaman og gefandi að starfa í stjórn ungmennafélagsins. Stjórnin vinnur ötulum höndum að því að efla starf félagsins þannig að sem flestir geti fundið hreyfingu og félagsskap við sitt hæfi. Stjórnin óskar eftir framboðum öflugra einstaklinga – margar hendur vinna létt verk! Áhugasömum er bent á að hafa samband á netfangið samherjar@samherjar.is
Minnum á að enginn verður neyddur til að taka sæti í stjórn og því er óhætt að mæta óhrædd á aðalfundinn!
Til baka í fréttir