Eftir rúma viku, laugardaginn 13. júní, verður Kvennahlaup ÍSÍ haldið í Eyjafjarðarsveit
Kynnið ykkur breytt fyrirkomulag hér í textanum fyrir neðan
- Lagt af stað frá Íþróttamiðstöðinni
- Elín danskennari mun sjá um upphitun sem hefst kl 10:40
- Hlaupið hefst kl 11:00
- Vegalengdir eru 2,5km og 5km
- Allir fá Topp og vörur frá Nivea
- Þátttakendur fá frítt í sund eftir hlaup
- Hægt að greiða þátttökugjald á staðnum með pening eða korti
Í ár var hlaupið endurskoðað og ákveðið að gera breytingar út frá umhverfissjónarmiðum. Til að gera hlaupið sem umhverfisvænast var ákveðið að gefa ekki boli og verðlaunapeninga í ár.
Þess í stað verður til sölu bolur sem er 100% endurunninn úr blöndu af endurunninni lífrænni bómull ásamt endurunnu plasti. Hönnuðurinn Linda Árnadóttir hannaði grafíkina sem prýðir bolinn í ár. Bolurinn er hvítur og grafíkin er í dökkfjólubláum lit (eggplant). Linda kallar grafíkina „Ég, þú, við“ og táknar hún í grunninn kvennasamstöðu. Bolurinn er hugsaður sem fjölnota flík, hvort sem er í ræktinni eða undir blazer eða við gallabuxurnar.
Bolasalan verður einnig með öðru sniði í ár. Bolirnir verða eingöngu seldir í gegnum Tix.is. Bolurinn mun kosta 4.000 kr. fyrir fullorðna og 1.500 kr. fyrir börn. Upplagið af bolum er talsvert minna en undanfarin ár þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.
Fólk sem hefur áhuga á að hlaupa mun geta mætt í eldri Kvennahlaupsbol og einungis greitt þátttökugjald (hægt að ganga frá á Tix.is). Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir fullorðinn og 500 kr. fyrir barn. Fólk framvísar þá útprentuðum miðum frá Tix.is eða kvittun í síma. Þeir sem vilja greiða á staðnum geta að sjálfsögðu gert það.