Kjör Íþróttamanns UMSE fyrir árið 2018 fór fram á Dalvík í dag ásamt því að veittar voru viðurkenningar m.a. fyrir meistaratitla og landsliðsverkefni. Að sjálfsögðu átti UMF Samherjar nokkra fulltrúa á þessari samkomu, sem er staðfesting á því hversu flott starf er unnið hjá Ungmennafélaginu. Þeir sem fengu viðurkenningar eru:
- Andri Már Mikaelsson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Auðunn Arnarsson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Ágúst Örn Víðisson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Enok Atli Reykdal fyrir Íslandsmeistaratitil í badminton
- Guðmundur Smári Daníelsson, sem er frjálsíþróttamaður UMSE árið 2018
- Hafþór Andri Sigrúnarson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Heiðmar Örn Sigmarsson fyrir Íslandsmeistaratitla í borðtennis og sæti í unglingalandsliðshóp
- Hildur Marín Gísladóttir fyrir Íslandsmeistaratitla í borðtennis og sæti í unglingalandsliðshóp
- Ingvi Vaclav Alfreðsson, sem er borðtennismaður UMSE árið 2018
- Jónas Hjartarson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý og bandýmaður UMSE árið 2018
- Jónas Godsk Rögnvaldsson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Mikael Máni Freysson, sem er frisbígolfmaður UMSE árið 2018
- Ólafur Ingi Sigurðsson, sem er badmintonmaður UMSE árið 2018 og í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Pétur Elvar Sigurðsson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Sigmundur Rúnar Sveinsson, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
- Trausti Freyr Sigurðsson, sem er í unglingalandsliðshóp í borðtennis
- Úlfur Hugi Sigmundsson fyrir Íslandsmeistaratitil í borðtennis
- Þorsteinn Jón Thorlacius, sem er í æfingahóp landsliðsins í bandý
Íþróttamaður UMSE árið 2018 var kjörin Amanda Guðrún Bjarnadóttir, frá Golfklúbbnum Hamri.









Við óskum þessum flottu fulltrúum UMF Samherja og Íþróttamanni UMSE 2018 innilega til hamingju!
Til baka í fréttir