Næstkomandi sunnudag er aldursflokkamót hjá Víkingum í Reykjavík og er heimavöllurinn þeirra TBR húsin í Laugardal. Mótið hefst klukkan 11 og er gott að keppendur séu mættir um það bil klukkutíma áður en keppni hefst í þeirra flokki. Mótið er fyrir alla sem eru fæddir árið 2001 eða síðar og er einungis keppt í einliðaleik.
Við höfum ekki mætt á aldursflokkamót á þessum vetri en það er óhætt að fullyrða að allir iðkendur eiga fullt erindi á mótið og munu hafa bæði gott og ekki síður gaman af þátttökunni.
Hér er slóð á mótsboðið þeirra:
https://www.bordtennis.is/aldursflokkamot-bordtennisdeildar-vikings-9-desember/
Við Samherjar ætlum að fjölmenna á þetta mót en þó verður ekki „rútufært“ heldur mun verða farið á einkabílum. Sameinumst í bíla og förum laugardaginn 8. des. Nú þegar er ljóst að amk 2 bílar fara og vonandi verða þeir fleiri.
Skráningar þurfa að berast á netfangið sigeiriks@gmail.com í dag, fimmtudaginn, 6. desember. Albest er að fá nafn og kennitölu til þess að spara tíma við að fletta upp og raða saman. (Skráningarfrestur rennur út klukkan 17:00 en unnið er í að fá frest til kl. 20:00.)
Sigurður og Ólafur Ingi
Borðtennisþjálfarar
862-2181 / 861-9414