Um næstu helgi stendur Borðtennisnefnd UMSE fyrir æfingabúðum í borðtennis í samstarfi við okkur hjá Samherjum. Við verðum gestgjafarnir að þessu sinni en kennari verður hann Bjarni frá Borðtennissambandi Íslands. Einnig verður Sigurður hjá Pingpong.is með í för og hann ætlar að vera með hluta af vöruúrvalinu sínu meðferðis. Það verður því væntanlega hægt að kaupa spaða hjá honum en margir spilarar hjá félaginu eru í þörf fyrir að fá sér betri spaða en félagið býður upp á.
Æfingabúðirnar verða í þremur lotum. Fyrsta lotan er milli 9 og 12 á laugardag og önnur ,milli 14 og 17 þann dag. Þriðja lotan verður svo frá 9 – 12 á sunnudeginum 30. nóv. Klukkan 13:00 hefst síðan opið borðtennismót.
Það eru ekki aldurstakmörk í æfingabúðirnar og þær eru iðkendum að kostnaðarlausu. Það er frjálst að mæta í eina lotu eða fleiri eftir því hvað hverjum hentar og hvaða tíma hann hefur. Mótsgjöld í borðtennismótinu eru 500 krónur fyrir hvern þátttakanda.
Nýtum nú tækifærið, yngri sem eldri, og fjölmennum um næstu helgi.
Nánari upplýsingar veita Sigurður og Ólafur Ingi borðtennisþjálfarar.
Til baka í fréttir