top of page
Search

Körfuboltabúðir BIBA og umf. Samherja 23.-25. ágúst



Helgina 23 - 25 ágúst ætlum við að vera með fyrstu alvöru körfuboltabúðirnar sem Samherjar í samstarfi við BIBA Borche Ilievski Academy standa fyrir í íþróttahúsinu fyrir börn á aldrinum 8-11 ára og 12-14 ára. Yfirþjálfari er Borche Ilievski og honum til aðstoðar verða körfuboltaþjálfarar Samherja. Borche Ilievski kom til Íslands árið 2006 og hefur þjálfað hjá KFÍ (Vestra), Tindastól, ÍR, Breiðablik og starfar núna sem þjálfari Fjölnis í 1. deild karla. Borche hefur auk þess þjálfað yngri landslið Íslands og haldið stórar körfuboltabúðir árlega á Íslandi og erlendis. Skráning fer fram í sportabler en Samherja krakkarnir okkar fá forgang fram að 10.ágúst þar sem það eru takmörkuð pláss í boði. Hvetjum körfuboltakrakkana okkar til að taka þátt þetta verður skemmtileg og lærdómsrík helgi fyrir bæði iðkendur og þjálfara.

9 views0 comments

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page