Eyjafjarðarsveit auglýsir umsóknarfrest vegna ferðastyrks vegna keppnis- og æfingaferða íbúa sveitarfélagsins.
Meginmarkmið styrkjanna er að styðja einstaklinga í sveitarfélaginu sem stefna að frekari framförum og árangri á sviði íþrótta.
Reglur og skilyrði:
Styrkþegi hafi lögheimili í Eyjafjarðarsveit.
Styrkurinn getur aldrei orðið hærri en þátttökugjaldið.
Hver einstaklingur getur sótt um styrk vegna einnar eða fleiri keppnisferða sem tekið er þátt í á árinu en styrkurinn verður þó aldrei hærri en samtals 20.000 kr. árlega.
Styrkinn er ekki heimilt að færa milli ára og fellur hann niður sé ekki sótt um hann á því almanaksári sem þátttakan fer fram.
Nánari upplýsingar HÉR.
Comments