Fréttir / Samherjar

⚽️ SKRÁNINGARFRESTUR RENNUR ÚT Á MORGUN! ⚽️

Við minnum á knattspyrnumót UMSE sem fer fram á íþróttavellinum á Hrafnagili fimmtudaginn 3. september. Mótið hefst um kl. 16:30–17:00 og vonumst við til að sjá sem allra flesta!

Mótið er fyrir börn fædd 2013–2020. Keppt verður í blönduðum liðum og verður reynt að koma öllum í lið, jafnvel þótt ekki náist full þátttaka í hverjum árgangi.

Skírnir Már verður með lið Samherja á mótinu.

Þátttökugjaldið er um 1.500 kr. og innifalið eru þátttökuverðlaun, pizzasneið og Svali.

❗️Skráningarfrestur er til og með þriðjudeginum 1. september.

👉 Skráning fer fram hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScfvgt2GIIvjms-uEDL8qGKUPrRCmke1UK8sOfkyp6uUj67DA/viewform?usp=dialog

Endilega skráið krakkana og mætum með stóran og flottan hóp frá Samherjum! 💙⚽️

Til baka í fréttir